Ævintýrið af Sölva og Oddi kóngi er glænýtt tónlistarævintýri eftir Báru Grímsdóttur byggt á íslenskum þjóðsögum og ævintýrum. Söngtextar eru eftir Helga Zimsen. Margrét Eir söngkona er í hlutverki sögumanns en einnig koma fram stúlknakór Neskirkju, hljómsveit og dansarar. Stjórnandi er Magnús Ragnarsson en dansahöfundur Guðmundur Helgason.

Ævintýrið fjallar m.a. um Odd konung og Sölva sagnamann sem gerist ráðsmaður hjá kónginum og fléttar Bára saman nokkrum sögum þar sem fjallað er um samkipti mannheima og álfheima. Tónlistin er létt og leikandi eins og Báru er von og vísa og höfðar sýningin til allra aldurshópa. Myndskreytingar eru eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur.