Velkomin í vefverslun Töfrahurðar sem er í eigu og rekstri Töfrahurð sf. kt. 661013-1760. Hér eftir verður notast við; „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Töfrahurð tónlistarútgáfu.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Töfrahurð samþykkir þú þessa skilmála.
1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.
2. VÖRUÁBYRGÐ
3. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA
Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
4. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar sem getur leitt til aukins sendingarkostnaðs.
5. FERILL PANTANA
Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Þegar vara er farin í póst berst þér staðfesting þess eðlis. Ekki er boðið upp á rekjanlegar sendingar. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga en póstsending getur tekið 1-4 daga.
6. GREIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Töfrahurðar:
Visa
Mastercard
Amex
Diners
Maestro
osfrv. kass – aur – netgíró
7. GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.
Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
9. SENDINGAR
Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Einungis er sent innan Íslands
10. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 8-16. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á tofrahurd@tofrahurd.is
12. HÖFUNDARÉTTUR
Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Töfrahurð sf. og er höfundarvarið.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.
13. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING
Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Við bjóðum upp á endurgreiðslu vara innan 7 daga frá kaupum ef viðkomandi er óánægður með vöruna, að því tilskildu að bækurnar séu til sölu hjá okkur, séu enn óopnaðar og í plasti ef þær eru seldar þannig. Við greiðum ekki sendingarkostnað ef vörur eru sendar til baka. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið tofrahurd@tofrahurd.is
Smákökur (cookies)
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem geymdar eru á vafra notenda. Töfrahurð notar vafrakökur á vefsíðu sinni til að auðkenna notendur. Notkun á vafrakökum gerir okkur því kleift að veita notendum betri upplifun og stuðla að frekari þróun vefsíðunnar.
Vafrakökur hafa ólíkan tilgang en sumar þeirra eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsvæða. Þær kökur eru ekki háðar samþykki notenda heldur byggir notkun þeirra á lögmætum hagsmunum Töfrahurðar, sem felast í því að geta veitt góða upplifun á vefsíðu sinni og til að stuðla að frekari þróun hennar. Aðrar vafrakökur eru notaðar t.d. vegna greininga á vefsvæðum, fyrir stillingar á vefsvæðum og markaðssetningu. Notendur þurfa að veita samþykki fyrir notkun á þeim vafrakökum.
Vafrakökur hafa einnig ólíkan gildistíma. Ákveðnar vafrakökur virka einungis á meðan vafri er opinn og er eytt þegar honum er lokað (e. session cookies) en aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma. Notendur geta lokað á vafrakökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar.
tofrahurd.is notar eftirtaldar vafrakökur:
Listi yfir öpp sem nota cookies og virkni t.d.
Google analytics
Þessar vefkökur eru valkvæðar og við notum þær ekki nema viðskiptavinur kveiki á greiningarvefkökuvirkni í stillingum. Við notum þessar vefkökur til að taka saman upplýsingar um heimsóknir í vefverslunina. Við skráum engin persónuauðkenni í þessar vefkökur. Samkvæmt upplýsingum frá Google er upplýsingum safnað í þessar vefkökur með þeim hætti að ekki sé hægt að auðkenna einstaklinga út frá þeim.