Kóngar, álfar, sagnamaður, maurar og margt fleira kemur fyrir í verki eftir Báru Grímsdóttur og Helga Zimsen sem byggt er á gömlum íslenskum munnmælasögum.
"......Ævintýrið af Sölva og Oddi kóngi er kostagripur sem öll börn ættu að fá a njóta."
Strengir á tímaflakki er tónlistarævintýri um strengjakvartett skipuðum köngulóm er lendir í viðburðarríku ferðalagi. Sagan er eftir Pamelu De Sensi en frumsaminni tónlist eftir Steingrím Þórhallsson er fléttað saman við tónlist meistaranna Vivaldis og Mozarts.
Íslenskar þjóðsögur og ævintýri, gömul en samt glæný.
„Sagan af Hlina kóngssyni“ er hluti af nýrri bókaröð Töfrahurðar sem byggir á íslenskum þjóðsagnaarfi.
Skemmtileg barnabók eftir Þórarinn Eldjárn og Elínu Gunnlaugsdóttur, sem segir frá hinni ungu Björt sem fer með afa sínum og ömmu í sumarbústað.
".... Lög Elínar eru sérlega skemmtileg. ... Bókaútgáfan Töfrahurð á hrós skilið að ráðast í jafn metnaðarfullt verkefni...."
Silja Björk Huldudóttir, MBL
".... söngur fjórmenninganna var fullkomlega
í stíl við efni og umhverfi. ...."
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
"........falleg sýning ...."
Hlín Agnarsdóttir, Djöflaeyjan