Strengir á tímaflakki

2.799 kr. 1.500 kr.

Strengir á tímaflakki er tónlistarævintýri um strengjakvartett skipuðum köngulóm er lendir í viðburðarríku ferðalagi.  Sagan er eftir Pamelu De Sensi en frumsaminni tónlist eftir Steingrím Þórhallsson er fléttað saman við tónlist meistaranna Vivaldis og Mozarts.

Lýsing

Allar kóngulær spinna vefi. Kóngulærnar í sögunni hennar Pamelu eru samt óvenjulegar því að úr þeirra spuna kemur tónlistarvefur. Fjórar kóngulær, Fríða fyrsta fiðla, Alma önnur fiðla, Vigga víóla og Silli Selló, spila saman í strengjakvartett. Þær spinna tónlistarvef út um allan skóg, vef sem er svolítið út um allt. Einn dag finna þær töfrastað sem flytur þær aftur í barokktímann. Þar hitta þær tónskáldin Vivaldi og Mozart sem kynna fyrir þeim heim strengjatónlistar og hvernig það er að semja tónlist. Á vegferð sinni lenda þær í ýmsum ævintýrum og í lokin taka þær þátt í tónlistarkeppni þar sem þær spinna sinn besta tónlistarvef og leika kóngulóardansinn Tarantellu.

Sagan er eftir Pamelu De Sensi en frumsaminni tónlist eftir Steingrím Þórhallsson er fléttað saman við tónlist meistaranna Vivaldis og Mozarts.

Sagan er tilvalin fyrir alla þá ungu tónsnillinga sem vilja kynnast klassískri tónlist á léttan og skemmtilegan hátt.

Höfundur: Pamela De Sensi

Tónlist: Steingrímur Þórhallsson

Myndskreytingar: Kristín María Ingimarsdóttir

 

Additional information

Höfundar:

Pamela De Sensi og Steingrímur Þórhallsson

Geisladiskur

Bókinni fylgir geisladiskur þar sem Sigurþór Heimisson les söguna og strengjakvartett leikur.

Blaðsíðufjöldi

32

Útgáfuár

2013

Blaðsíðufjöldi

32

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Strengir á tímaflakki”

Netfang þitt verður ekki birt.

Title

Go to Top